30 maj 2007

Wanted: Ben & Jerry

Baby, I'm back! Það er búið að vera fullt að gera eins og Hafrún lét Lilju vita í kommentunum, Thelma er annað hvort á fullu að pirra okkur eða gjarnan Nanoq, eða þá sofandi einhversstaðar í fanginu á mér og ég verð bara að sitja kyrr, thank you verry much. En þetta er bara gaman. Síðan var skólinn að klárast núna þannig að það er búið að vera mikið að gera í því líka... En nú er þetta allt að koma.

Hafrún og Palli fóru heim fyrir sirkabout viku síðan eftir aaaallt of stutta helgi í heimsókn. En það var æðislegt að fá ykkur. Þau fengu bara frábært veður eila alla daga, og svo sáum við Jan á hjóli á laugardagskvöldinu! Hehe.

Einar vildi fá mynd af Thelmu og eldspýtustokk till að sjá hvað hún er "stór"... So, here ya go! Gott að naga hann greinilega

Greyið varð bitin af djöflahundi sem býr hérna í húsinu, ég ætlaði að verða brjáluð!! Hann er bara ekki í lagi, fullorðinn hundur að ráðast á pínulitlann hvolp. Mig langaði bara að hringja í lögregluna og láta taka hundinn en ég róaði mig aðeins. Ég held að hún Thelma se bara búin að gleyma þessu núna, en hún var alveg skíthrædd við allt og alla fyrst! Núna er hún bara hrædd við fólk, aftur. What to do, what to do...

Nú er bara að vona að sumarveðrið fari að mæta aftur, núna er bara alveg eins og það sé komið haust. Pirrandi, en þetta er þó ekki snjókoma eins og kom víst fyrir vestan um daginn, muhaha! Ææ þetta er ágætt.

Rétt rúmir tveir mánuðir síðan elsku pabbi skildi við þennan heim... Og ég er ennþá að reikna með að hann komi bara heim bráðum, að hann sé hjá mömmu þegar ég fer í heimsókn eða komi heim úr löngu ferðalagi... Þetta er ótrúlegt og ég á sennilega aldrei eftir að fatta þetta alveg.. Vonandi líður þér vel þar sem þú ert pabbi minn.

4 kommentarer:

Þórunn Gyða sa...

tíu mánuðir auðvitað... jeez...

Anonym sa...

Hæ og takk fyrir síðast! Þetta var bara alveg frábært en alltof stutt. Verðum bara lengur næst og þá leyfum við kannski hrognunum að koma með. Knús til ykkar allra, ekki síst til Jan (og Lotte).
Kveðja, Hafrún frænka.

p.s. Mundi Palli eftir að sýna ykkur mótorhjólaskírteinið sitt?

Anonym sa...

Hey. You said you were back! Well why would you dissappear again then?

Anonym sa...

Hei Þórunn ertu nokkuð hætt...ég er búin að fara hér inn nokkuð oft og ekkert að gerast :o Kv Tinna