01 november 2007

November 2 2007

Fyrst ég var nú svo dugleg að skrifa mail í frænkuátakið, þá held ég íslenskunni bara aðeins áfram.

First: Hildur, ég er búin að búa til myndasíðu með baaraa myndum af Thelmu, all for you! Here ya go!

Fékk fréttir um sjálfa mig um daginn, not so good, bara "sjúkdómur" sem gerir að ég þurfi að éta pillur það sem eftir er af ævinni. Ekkert hættulegt, núna, en gæti orðið ef ég fengi ekki meðal. Þetta útskýrir alla vega af hverju ég hef verið þreytt, erfið og ekki getað einbeitt mér síðastliðna mánuði, og líka af hverju ég hef FITNAÐ svona! Haha, Tinna, ég gæti SKO sýnt þér bumbumyndir! Mínus barn innaní sko. Alveg ótrúlegt. Jæja þetta ætti þó að fara að lagast núna!

What's new. Auður, Ársæll og Alexander Hrafn voru hér í heimsókn fyrir tvem vikum. Var það mjög gaman að fá þau í heimsókn, og Alexander var alveg eins og þegar ég sá hann síðast (nóvember í fyrra) nema hvað hann var orðinn stærri og farinn að labba. Sami svipurinn á drengnum! Krútt. Mamma var svo sett í að passa á laugardagskvöldið því þá var ætlunin að djamma og ætlaði ég SKO að taka með mér Auði í fallið... Ég skemmti mér alveg konunglega og vona bara að þau hafi gert það líka.

Næst í heimsókn verður Lilja og það verður frábært. Það verður sennilega lítið djammað þó, hún verður bara hérna í miðri viku. En ég verð nú einhvern daginn að reyna að plata hana líka, lauma í hana bjór og nammi og snakk og læsa hana inni í herbergi svo hún komist ekki í göngutúr eða rækt. Verð eiginlega að reyna að redda því alla dagana. Any ideas? Lilja, ég veit ég var búin að lofa þér að finna leikskóla hérna í bænum sem við gætum heimsótt, en hvað meir? Á ég að tala við þá líka? Því ég er sko alls ekki búin að því. En það ætti að reddast ef svo er.

9 kommentarer:

Lilja sa...

takk fyrir frábært shopping spree. framvegis verður þú alltaf með þegar ég þarf að versla, þetta bara skotgekk hjá mér. Love u all og sí jú sún aftur.

Anonym sa...

Hæ skvís guð hvað Thelma er mikið krútt og æðislegar myndir af henni :)Það er orðið SVOLDI langt síaðn að ég hef kvitta hjá þér enda búið að vera crazy að gera í skólanum en það er einungis vika eftir og þá er ég komin í jóla frí :) ekki verður það nú leiðinlegt:)Svo kemur litla krílið okkar í febrúar þannig að það eru yndislegir tímar framundan :)
Hafðu það gott skvís:)
Kv Tinna Unnars

Lilja sa...

Jæja er ekki kominn tími á smá íslensku hérna????

Lilja sa...

Bara að láta vita að ég kíki ennþá til að athuga með nýtt blogg. Bíð spennt.

kv. Lilja

Anonym sa...

Sæl og blessuð Þórunn. Rakst á þessa síðu fyrir algjöra tilviljun og bara varð að kvitta þar sem ég hef ekki séð þig í svo mörg ár.
Kveðja Rannveig

Anonym sa...

P.s. gleymdi þessu svo þú sérð amk hver ég er www.barnanet.is/vor

Anonym sa...

Heyrðu kona ertu nokkuð búin að gleyma okkur, langt síðan að maður hefur fengið nýja frétt af þér hingað inn :) En annars er fint að fretta af mér það eru 2 vikur í krílið okkar og ég get bara hreynlega EKKI beðið. Ég er bara með barnalandssiðu og skrifa þar inn nokkrar frettir ef þig langar að njósna um okkur slóðin er www.barnidokkar.barnaland.is
Man ekki hvort að ég var búin að segja þér lykilorðið inn á siðuna, ef ekki þá sendir þú mér mail og ég mun hvísla því að þér hehe :)
En jæja bið að heilsa öllum kv Tinna og bumban :*

Hildur Sólveig sa...

Heyrðu... viltu fara að blogga KONA!!! Bið að heilsa!

Anonym sa...

Hæ skvís ertu nokkuð hætt að blogga? En annars ætlaði ég bara að láta þig vita að það er kominn lítill prins :) algjör draumur :)
Hafðu það gott.
Kv Tinna